Hér er ágætis dæmi um sökkla. Þegar hús eru byggð úr Durisol steinunum er í öllum tilfellum betra að hafa sökklana einnig úr byggingarsteinunum. Þessi framkvæmd leiðir til þess að tengja saman gólfplötuna, steypta kjarnann í sökklinum og steypta kjarnann í útveggnum. Gólfplatan sameinast þá steypta kjarnanum og einangrunin helst heil við ytra byrði veggjarins.