Um okkur
Við rennum stoðum undir betri byggingar til framtíðar
PAGO Hús ehf er fyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu á umhverfisvænum vörum til byggingariðnaðar. Við höfum það að leiðarljósi að koma með betri og hagkvæmari lausnir inn á íslenskan markað. Okkar helsta markmið er að stytta byggingartíma og lækka kostnað til hagsbóta fyrir viðskiptavini okkar.
Við hjá PAGO Húsum sýnum samfélagslega ábyrgð í verki. Með þeim lausnum sem við bjóðum leggjum við okkar að mörkum við að skapa betra umhverfi í húsnæðismálum á Íslandi ásamt því að stuðla að því að minnka kolefnisspor.
Við rennum stoðum undir betri framtíð fyrir komandi kynslóðir
PAGO fylgir og uppfyllir þau Heimismarkmið Sameinuðu Þjóðanna sem The World Green Building councel og Grænni Byggð hafa tileinkað sér

