Kostir Durisol og sparnaður
Með notkun Durisol kubbanna er hægt að ná fram umtalsverðum sparnaði. Það má byggja úr þeim í öllum veðrum sem er mikill kostur þegar litið er til íslenskrar veðráttu. Einn helsti kostur Durisol kubbanna er einmitt hve auðvelt og fljótlegt það er að byggja úr efninu. Með góðu verklagi getur ein manneskja hlaðið 25 fermetra vegg á 8 tíma vinnudegi.
Það að einangrunin skuli þegar vera í byggingarkubbunum þegar þeir eru afhentir á byggingarstað er stór kostur og sparar alla þá vinnu sem fara þarf í þegar sníða þarf einangrun eftir á. Þegar Durisol kubbar frá PAGO Húsum eru notaðir við að reisa veggi má reikna með að kostnaður lækki um 20%.
NOKKRIR KOSTIR DURISOL
ELDÞOLIÐ EFNI
Durisol byggingarkubbarnir eru eldprófaðir og niður-stöður hafa sýnt að veggir úr þeim eru mjög eldþolnir og fara langt framúr kröfum bygginarreglugerðar.
HLJÓÐVIST
Hljóðvist Durisol veggja er mjög góð og hefur dempunin mælst allt að 63dB. Bergmál er ekki vandamál í Durisol húsum.
ENDURUNNIÐ OG VOTTAÐ
Durisol kubbarnir eru að 80% hluta úr endurunnum efnum. Þeir eru vistvæn framleiðsluvara sem minnkar kolefnisspor verulega.
VEL EINANGRUÐ OG ORKU-SPARANDI HÚS
Veggir úr Durisol kubbum eru mjög vel einangrandi og orku-sparandi. Durisol hús viðhalda varma og kyndingarþörf minnkar.
BYGGINGAR ÚRGANGUR MINNKAR
Byggingariðnaður í Evrópu er ábyrgur fyrir u.þ.b. 40% af öllum úrgangi. Umfangið minnkar verulega með notkun Durisol byggingarkubbanna.
UMALSVERT LÆGRI KOSTNAÐUR
Þegar byggt er með Durisol má búast við um 20% lægri kostnaði á hvern fermeter af vegg miðað við hefðbundinn steyptan vegg.
FRAMLEIÐSLAN KREFST EKKI ORKUFREKS IÐNAÐAR
Verksmiðjan sem framleiðir kubbana er t.d. ekki hituð heldur er varmi frá framleiðslunni sjálfri látin hita vinnusvæðin.
FLJÓTLEGT AÐ BYGGJA ÚR
Ein manneskja getur hlaðið 25 fermetra vegg á einum átta stunda vinnudegi. Með góðu verklagi má reisa útveggi og burðarveggi parhúss á rúmri viku.
LÆGRI FJÁRMAGNS-KOSTNAÐUR
Það er hvorki þörf á mótum né byggingarkrönum þegar byggt er með Durisol.
YFIR 80 ÁRA REYNSLA
Durisol byggingarkubbarnir eiga sér yfir 80 ára góða reynslusögu víða um heim. Byggingar allt frá einbýlishúsum og upp í 26 hæða hótel bera þess vitni.
MYGLA OG AÐRAR ÓVÆRUR ÞRÍFAST EKKI Í DURISOL HÚSUM
Byggingarkubbarnir frá PAGO eru framleiddir að 80% hluta úr endurunnum viði sem er steingerður með vistvænum aðferðum. Efnablandan sem notuð er gerir framleiðsluna mjög basíska þannig að það mygla, títlur, maurar og aðrar óværur þrífast ekki í Durisol veggjunum.
DURISOL
Helsti ávinningur þess að nota Durisol kubbana við að byggja er hve auðvelt og fljótlegt það er að reisa húsið sem sparar tíma. Einnig er kostur að ekki þurfi að nota mót og krana við verkið. Það getur komið í veg fyrir kostnaðarsamar tafir að hægt er að byggja úr kubbunum í hvaða veðri sem er. Það er eftirsóknarvert fyrir íslenskar aðstæður og eðlileg afleiðing þess er minni launakostnaður.
Kubbarnir eru hlaðnir í vegginn án þess að steypt sé á milli þeirra. Það má líkja hleðslunni við Lego kubba þar sem kubburinn er alltaf settur með miðjuna ofan á samskeyti kubbanna í röðinni fyrir neðan. Hliðar kubbanna eru að lögun annars vegar með „karli“ og hins vegar „kerlingu“ þannig að þeir falla þétt saman í hleðslunni. Þess vegna er yfirleitt ekki þörf á því að styrkja samskeyti kubbanna frekar þegar steypunni er hellt ofan í vegginn. Það þarf þó að laska vegginn og styrkja vel þar sem steypuhólf hefur verið sagað sundur.
Það er fljótlegt að byggja úr kubbunum og getur það tekið eina manneskju aðeins um 8 tíma vinnudag að hlaða allt að 25 fermetra vegg. Það að einangrunin skuli vera komin í kubbana þegar þeir eru afhentir á byggingarstað er kostur og sparar þá vinnu sem fara þarf í þegar sníða þarf einangrun og festa utan á húsið eftir á. Þegar Durisol kubbarnir eru notaðir má reikna með að kostnaður per fermeter sé um 20% lægri miðað við hefðbundnar aðferðir við steinsteypt hús.