Þessi sex íbúða búsetukjarni er rúmlega 500 fm. Það eru 24 horn á húsinu en það er hvorki dýrara né tefur verkið þegar byggt er með byggingarsteinunum frá PAGO. Útveggir hússins með einangrun og allir eldþolnir burðarveggir inni í húsinu ásamt steypu og járnabindingum voru reistir upp að sperrusteypu á fjórum vikum í mars 2020 gegnum gular og appelsínugular veðurviðvaranir. Í tilboðsfasanum fékk útfærsla þessa húss hæstu einkunn hjá þeim aðilum sem stóðu að úrvinnslunni fyrir bæjarfélagið. Byggingarefnið sem eru Durisol steinarnir frá PAGO er að 80% hluta úr efnum sem annars hefði verið fargað. Það er góð hljóðeinangrun í húsinu og var tekið sérstaklega til þess á byggingartíma hússins hve þægileg hljóðvist myndaðist fyrir fagfólk sem vann á staðnum.
Recent Posts
Recent Comments
No comments to show.

