Hér er búið að steypa sökkulfót og ná honum alveg réttum og fyrstu lóðréttu járnin eru komin á sinn stað. Þá er byrjað að hlaða sökklana og má sjá fyrsta byggingarstein á myndinni hér. Það er alltaf hlaðið frá horni og kubbaraðir látnar mætast við miðju þess svæðis sem verið er að hlaða, hvort sem það er milli horna eða milli hurða og gluggaopa eða frá horni að hurðaopi. Alltaf er hlaðið að miðju og þar eru steinarnir sagaðir ef þess gerist þörf.