Hér má sjá þar sem plötusteypa rennur saman við útvegg neðri og efri hæða. Þessi aðferð er bæði sjnöll og fljótleg. Milliplatan og útveggir hæðanna mynda mynda þarna eina sterka heild og einangrunin helst óskert við ytra byrði veggjarins. Þessi aðferð gildir líka um botnplötu en í því tilfelli sameinast gólfplata byggingarinnar sökkli og útvegg jarðhæðar.