
UM OKKUR
PAGO Hús ehf er fyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu á umhverfisvænum vörum til byggingariðnaðar. Við höfum það að leiðarljósi að koma með betri og hagkvæmari lausnir inn á íslenskan markað. Okkar helsta markmið er að stytta byggingartíma og lækka kostnað til hagsbóta fyrir viðskiptavini okkar.
Við hjá PAGO Húsum sýnum samfélagslega ábyrgð í verki. Með þeim lausnum sem við bjóðum leggjum við okkar að mörkum við að skapa betra umhverfi í húsnæðismálum á Íslandi ásamt því að stuðla að því að minnka kolefnisspor.